Tuesday, November 28, 2006

Sunday, October 15, 2006




 Posted by Picasa



 Posted by Picasa



Guðrún kom með twister, alltaf vinsællt Posted by Picasa



 Posted by Picasa




















Jasser var svo góður að koma með gítar og spila fyrir okkur :-) Hann söng líka
 Posted by Picasa



 Posted by Picasa



 Posted by Picasa

Saturday, October 14, 2006


















get bara sett inn nokkrar myndir inn í einu svo að þetta kemur í smá skömmtum Posted by Picasa



loksins koma myndir úr tvítugsafmælinu mínu Posted by Picasa

Thursday, October 12, 2006

núna þegar haustið er komið langaði mig að finna flotta haustmynd á netinu. Fór á google og googlaði þangaði til ég fann þessa mynd. Ég nota hana sem backgrunnsmynd á desktopinu mínu og á msn. Posted by Picasa
já ég held að ég ætli að færa mig yfir. En ég ætla samt ekki að hætta með þessa síðu, nei ég ætla að breyta þessari síðu í myndablogsíðu!! :-) Þannig að við og við mun ég setja inn nokkrar myndir.
er á báðum áttum en kíkið á http://puritygirl86.bloggar.is

Wednesday, October 11, 2006

Þú veist að það er árið 2006 ef...

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með venjulegum spilum í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er vegna þess að þeir eru ekki að blogga, eru ekki með MySpace og/eða á MinnSirkus.
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjærstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn til að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega leist til baka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þína, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri á einhvern hátt.
EF þú féllst fyrir þessu...


og já ég skal alveg viðurkenna það að ég féll fyrir þessu :$

Saturday, September 16, 2006

Á unglingasamkomunni í gærkvöldi predíkaði Friðrik Schram um að þekkja vilja Guðs . Þetta talaði til mín vegna þess að oft finnst mér erfitt að vita hver sé vilji Guðs. Hérna eru punktarnir sem hann kom með.

Góð áform Guðs með þig
Jer. 29:11
Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður, segir Drottin, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonaríka framtíð.

Þekkja rödd Jesú
Jóh. 10:27
Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér.

Heilagur andi kennir og minnir á
Jóh. 14:26
En hjálparinn, andinn heilagi sem faðirinn mun senda í mínu nafni mun kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt yður.

Sannleikur
Jóh 18:37
Þá segir Pílatus við hann: ,,Þú ert þá konungur?“ Jesús svaraði: ,,Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn að ég beru sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum heyrir mína rödd.“

Halda boðorð hans
1. Jóh. 2:3
Og þá því vitum vér að vér þekkjum hann, ef vér höldum boðorð hans.

og að lokum
Róm. 12:1-2
Því brýni ég yður, bræður, að þér vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þókanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi. Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttar skipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.

Thursday, July 13, 2006


Eins og venjulega þá er ég ekkert dugleg að blogga.

Spánn var æðislegur. Við fengum gott hús, með sólþaki og aðgang að sameiginlegri sundlaug sem var mjög flott. Við fengum reyndar ekki frábært veður fyrri vikuna en seinna vikan var frábær. Hitinn var á bilinu 25-30°C. Við fórum í marga bíltúra og skoðuðum umhverfið. Sáum margt, eins og pálmatré, geitahirðir með hjörðina sína, flamingo fugla, akrar af sítrónutrjám og fleira. Einn daginn fórum við til Benidorm, ég og Elísabet fórum í dýragarðinn þar. Mér fannst rosalega gaman á Spáni og langaði ekkert heim, í kuldan og rigninguna. Hittum ekki mikið af Spánverjum vegna þess að á svæðinu þar sem við vorum, voru aðallega Englendingar.

Á morgun er síðasti dagurinn minn í vinnunni. Er frekar spennt. Í dag eru fjögur ár síðan ég byrjaði. Er að hætta núna vegna þess að eldsnemma á mándaginn fer ég til Svíþjóðar!! :-) Flýg til Stokkhólms, verð þar næstum 10 daga, síðan tek ég lest til Gautaborgar og verð þar í um viku og flýg heim 2. ágúst. Verð fyrst hjá “sænsku foreldrum” mínum, hitti gamla bekkjarfélaga og kunningja. Síðan í Gautaborg verð ég hjá bestu vinkonu mömmu og hitti vinkona mína. Hlakka ekkert smá til.

Sunday, June 11, 2006

Já ég veit, það er mjög langt síðan ég bloggaði. Í stuttu máli hef ég aðallega verið að vinna eins og venjulega. Á kvöldin hef ég horft á sjónvarpið og verið í tölvunni. Á föstudagskvöldum fór ég á unglingasamkomurnar. Og um helgar hef ég slakað á, tekið til, hitt vinina og svoleiðis. Síðan vann ég líka tvo laugardaga.
Ég er að fara til Spánar á morgun!!! Hlakka ekkert smá til, komast í sólina og ströndina, verða brún, versla og skoða helstu staði. :-D Verð í tvær vikur.

Heyrumst!